Kostir Melywood®
Harðviður (750-800 Kgm³)
100% Náttúrulegur
Endingarflokkur 4
Nánast enging hreyfing
100% FSC (frá framleiðanda)
Notkunarflokkur 4
Ekkert tannín smit
Melywood® er áberandi góð nýjung í pallaefni og klæðningum. Þetta er harðviður sem búið er að meðhöndla, án eiturefna. Meðhöndlunin fjarlægir tannínið úr viðnum. Það sem vinnst með því er meðal annars; viðurinn léttist um nálægt 100kg pr. m³, hann þolir betur erfið veðurskilyrði og tannín smit heyrir einnig sögunni til. Þetta leiðir til þess að leitun er að betri við til notkunnar úti. Melywood® er þurrkaður í 13%, sem gerir hreyfingu í viðnum nánast enga. Við áætlum að verðið verði ekki hærra en Kr. 13.900,- pr. m². (Háð gengi USD og endanlegum flutningskostnaði) Þessu frábæra verði náum við með innkaupum beint frá verksmiðju.
Stærð: 21mm x 145mm.
Lengdir frá 2.40m-4.20m.
Melywood® er Merbau, sem vex á Borneo. Framleiðandinn fylgir FSC staðli um nýtingu skógarins.
Við erum farnir að taka á móti pöntunum, án skuldbindingar.
Það er eindregið mælt með að nota harðviðarlektur, 40mm x 60mm. Við eigum Padouk harðviðarlektur. Með því að nota harðvið, færðu minni hreyfingu í undirstöðum og þar með betri endingu
Ef pallur er settur upp, skv. leiðbeiningum, þ.e. 40cm milli lekta, A4 5x50 skrúfur og 6-8mm bil, þá er 25 ára ábyrgð á Melywood®.
Myndin er ekki eins góð og við viljum hafa hana, en þetta er mynd af fyrsta verkefninu, þar sem Melywood er notað. Það er ennþá bleyta eftir rigningu á pallinum.