Klæðningar
Techniclic klæðning frá Vetedy eru einstaklega sveigjanleg. Klæðningin, sem framleidd er í Belgíu, er fáanleg í nokkrum viðartegundum, og 2 eða 3 breiddum, 60mm,100mm og 140mm. Borðin eru með tappa og nót á endum. Lengdir eru blandaðar, frá 1.5m - 3.0m. Staðlað bil á milli borða er 6.5mm, en hægt er að fá bilkubba, sem eru 10mm, 20mm og 30mm. Hægt er að blanda þessu saman, á sama flöt, mismunandi breið borð og mismunandi bil á milli!
Verðlisti
Jaya 60/100 Kr. 26.242,-
Padouk 60/100 Kr. 27.403,-
Tekk Uni 60/100 Kr. 28.888,-
Thermo viður
Askur 60/100/140 Kr. 30.477,-
Fura 60/100/140 Kr. 18.076,-
Ayous 60/100/140 Kr. 24.411,-
Arema 60/100/140 Kr. 24.411,-
Allt verð er með virðisaukaskatti.
Verð miðast við gengi Eur 5. mars 2025
Með fyrirvara um verðbreytingar.
Uppgefið verð miðast við 6.5mm bil.
Innifalið í verði er klæðning, brautir, skrúfur í brautir og klemmur.
Við gerum tilboð í 150m² og meira.
Verð breytist lítillega eftir breidd borða, og hvort bilkubbar séu teknir 10mm, 20mm eða 30mm
Tekk 60mm og síberíu lerki í verkefni á Íslandi
Við bjóðum einnig upp á:
Lektur, 30mm x 60mm í gagnfúavörðu, 30/40mm X 60mm í padouk.
Litað ál í innhorn/úthorn, botn/topp lista
Tyvek öndunardúk, Tyvek límband f. öndunardúk
Parabond 600 límkítti
Innanhúss
Það er auðvelt að setja klæðningu á vegg innanhúss. Og hver viðartegund, kemur með sinn eigin sjarma inn á heimilið eða vinnustaðinn.
Utanhúss
Það eru ótal margir möguleikar í klæðningum utanhúss. Og ekkert auðveldara en að nota mismunandi breiddir, eða hafa lágrétt og/eða lóðrétta klæðiningu.
Skjólveggir
Það er hægt að nota bæði Technclic lausnir og Softline lausnir, í skjólveggi.